Morðið í Gróttu
Þegar miðill leitar til Stellu með morðgátu úr framtíðinni afgreiðir hún hann sem loddara. Henni er því brugðið þegar kvótakóngurinn Grímúlfur finnst myrtur í Gróttu, við aðstæður sem minna óhugnalega á lýsingar miðilsins.
Ráðgáturnar hrannast upp og Stella þarf að taka á honum stóra sínum til að vera skrefi á undan kaldrifjuðum glæpamönnum og prúðupiltunum í lögreglunni. Andstæðingar hennar svífast einskis til að koma höggi á hina kjaftforu og harðsoðnu Stellu. Við tekur vægðarlaus barátta upp á líf og dauða. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott, laus við allt krot og nafnamerkingu
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.