Önnur líf

Aðfaranótt páskadags 2010 fannst Erla Líf Bóasdóttir í blóði sínu undir kirkjuvegg í Reykjavík, vafin í hvítt lín. Hún hafði verið stungin ellefu sinnum. Rúmu ári áður, í janúar 2009, varð hún fyrir hrottalegri árás þriggja grímuklæddra manna eftir að hafa dansað við eldana á Austurvelli við taktfastan undirleik búsáhalda og byljandi trommuslátt langt fram á frostkalda nótt. Katrín stýrir rannsókn málanna og á afar bágt með að trúa að engin tegnsl séu á milli þessara tveggja grimmilegu árása á Erlu Líf.
Það reynist henni þó allt annað en auðvelt að sýna fram á þessi tengsl og finna hina seku, ekki síst af því að almenna rannsóknardeildin er í upplausn vegna fjarveru Stefáns, sem ekki kemur til af góðu. Árni er í feðraorlofi og karlinn Guðni reynist Katrínu verri en enginn þegar hann verður sjálfur miðpunktur rannsóknar á sóðalegu morði í innsta hring undirheima Reykjavíkur. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Önnur líf er sjötta skáldsaga Ævars Arnar Jósepssonar

Ástand: gott, laus við allt krot eða nafnamerkingu

Önnur líf - Ævar Örn Jósepsson

kr.250

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,520 kg
Ummál 12 × 3 × 20 cm
Blaðsíður:

361

ISBN

9789979659907

Kápugerð:

Kilja

Útgefandi:

Uppheimar

Útgáfustaður:

Akranes

Útgáfuár:

2010

Hönnun:

Aðalsteinn S Sigfússon (kápuhönnun)

Höfundur:

Ævar Örn Jósepsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Önnur líf – Ævar Örn Jósepsson – Kilja”