Miðfjarðará
Héraðið – jarðirnar – veiðar – veiðistaðalýsing – veiðimenn
Fáum blandast hugur um að Miðfjarðará sé ein af perlum íslenskra laxveiðiáa. Ekki aðeins vegna þess að hún er oftast meðal þeirra áa, sem flesta laxa gefa á veiðitímabilinu, heldur ekki síður vegna þess að hún er óvenjulega fjölbreytt og hefur upp á flest það að bjóða sem stangaveiðimenn sækjast eftir. Þar fara veiðimenn ýmist um gróðursæla dali, þar sem áin rennur lygn á eyrum, eða hrikaleg gljúfur þar sem vaða þarf ána sitt á hvað til þess að komast leiðar sinnar.
Í þessari bók er fjallað um hina litríku sögu Miðfjarðar sem ól kappa á borð við Gretti Ásmundarson og Kormák skáld. Sagt er frá þeim jörðum sem eiga land að ánni og ábúendum þeirra. (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Bókin Miðfjarðará eru 13 kaflar, þeir eru:
- Formáli
- Sögufrægt hérað
- Jarðir og ábúendur
- Nytjar árinnar fyrr á tímum
- Veiðfélag Miðfirðinga
- Stjórn V.M.
- Veiðieftirlit og átök
- Veiðistaðir
- Austurá
- Núpsá
- Vesturá
- Miðfjarðará
- Veiðimenn
- Veiðikort og veiðiskýrslur
Ástand: gott, bæði innsíður og kápa
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.