Matseðlar fyrir gestaboð
Bókaflokkur: Sælkerasafn Vöku
Matseðlar fyrir gestaboð! Það hljómar hátíðlega. En í raun og veru getur verið um margs konar rétti að ræða. Í þessari bók eru margvíslegar tillögur bæði að stórum og smáum veisluréttum. Tilefnin sem nota má til þess að safna fólki saman yfir góðum mat eru mörg. Þar má nefna fagnaðarfundir, þegar fjölskyldan kemur saman, útskriftarveislur, afmæli eða boð fyrir vini og kunningja.
Gestanna má freista með ýmsu og í bókinni eru fimmtón matseðlar með forréttum, aðalréttum og eftirréttum, og einnig er stungið upp á drykkjum sem hæfa réttunum. Þessi bók auðveldar ölum að halda boð sem bragð er að. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Matseðlar fyrir gestaboð eru 15 kaflar, þeir eru:
- Hádegisverðarboð: Síld og heitir réttir
- Karöfluveisla kemur á óvart
- Frábærir pylsuréttir
- Freistingar að lokinni leikhúsferð
- Sunnudagsmáltíð fjölskyldunnar
- Réttir beint úr pottinum
- Krabbaréttir í hausthúminu
- Úrvals fiskréttir með óvæntu yfirbragði
- Góður silungur við gesta hæfi
- Vorfagnaður af góðu tilefni
- Ljúffengir kjúklingaréttir
- Kvöldverður í góðra vina hópi
- Villibráð á veisluborðið
- Hentugt salatborð
- Hlaðborð við hátíðleg tækifæri
Ástand: innsíður góðar og kápan er góð
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.