Ljúffengir brauðréttir
Bókaflokkur: Sælkerasafn Vöku
Fáir réttir eru jafn fjölbreytilegir og brauðréttir. Þeir geta ýmist verið mjög einfaldir eða þá stórgælsilegir, allt eftir því hvert hráefnið er. Í þessari nýjustu bók Sælkerasafnsins er að finna 91 uppskrift að hinum ólíkustu brauðréttum. Flestir eru þeir einfaldir og yfirleitt tekur ekki nema 20-30 mínútur að útbúa þá.
Ótal aðferðir má nota til að matreiða brauðrétti. Glóða brauð með fersku áleggi má bera fram sem forrétt eða á hádegisverðarhlaðborð. Í heitar samlokur er tilvalið að nýta afganga. Gratíneraða brauðrétti er einfalt að útbúa og má hafa til með góðum fyrirvara. Heit brauðtrerta er veislumatur.
Það er sama hvort þið eruð að koma þreytt heim úr vinnunni eða úr notalegri leikhúsferð; ljúffengir brauðréttir eiga alltaf jafn vel við.
Frábærar litmyndir ættu að auðvelda valið hverju sinni og stuðla að því að þið fáið vatn í munninn. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Ljúffengir brauðréttir eru sjö kaflar, þeir eru:
- Glóðaðar brauðsneiðar
- Góðgæti á steiktu brauði
- Steiktar samlokur
- Gratíneraðir brauðréttir
- Góðgæti leynist undir sósunni
- Fyllt brauð
- Smurbrauðstertur
Ástand: innsíður góðar og kápan er góð
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.