Kransæðabókin
Í Kransæðabókinni er að finna gagnlegar og auðlesnar upplýsingar um kransæðasjúkdóm sem hrjáir þúsundir Íslendinga og er ein algengasta dánarorsökin hér á landi. Bókin er samin af 30 íslenskum sérfræðingum; læknum, hjúkrunarfræðingum, sjúkraþjálfurum og næringarfræðingum sem flestir starfa á Landspítala og er ætluð almenningi ekki síður en heilbrigðisstarfsfólki.
Rekja má um þriðjung allra dauðsfalla á Íslandi til hjarta- og æðasjúkdóma, og eru ¾ þeirra vegna kransæðasjúkdóms. Margir áhættuþættir kransæðasjúkdóms eru vel þekktir eins og reykingar, háþrýstingur, hækkaður blóðþrýstingur og blóðfitur, sykursýki, offita og hreyfingarleysi. Kransæðasjúkdómur er líka algengari í vissum fjölskyldum og hefur ættlægni sjúkdómsins lengi verið þekkt. Ert þú í áhættuhópi að fá kransæðasjúkdóm og hvað getur þú gert til að draga úr þeirri áhættu? Í Kransæðabókinni er að finna ítarlegar upplýsingar um þennan algenga sjúkdóm sem er eitt stærsta viðfangsefni íslensks heilbrigðiskerfis,m.a. um orsakir, einkenni, greiningu, meðferð og forvarnir. Í bókinni eru einnig ítarlegir kaflar um mataræði og þunglyndi en sýnt hefur verið fram á að þunglyndi getur aukið áhættu á kransæðasjúkdómi.
Bókin Kransæðabókin er skipt niður í 19 kafla, þeir eru:
- Kransæðar og kransæðablóðrás
 - Faraldsfræði kransæðasjúkdóms
 - Orsakir, meinþróun og meingerð
 - Erfðir kransæðasjúkdóms
 - Áhættuþættir og forvarnir
 - Mataræði og hjartasjúkdómar
 - Einkenni kransæðasjúkdóms
 - Greining kransæðasjúkdóms
 - Brátt kransæðarheilkenni
 - Meðferð Kransæðasjúkdóms
- Lyfjameðferð
 - Kransæðavíkkun
 - Kransæðahjáveituaðgerð
 
 - Undirbúningur og eftirmeðferð eftir kransæðavíkkun og kransæðahjáveituaðgerð
 - Endurhæfing eftir kransæðastíflu og/eða kransæðaaðgerð
 - Kransæðasjúkdómar í konum
 - Kransæðasjúkdómar hjá öldruðum
 - Meðferð kransæðasjúklinga fyrir svæfingu og skurðaðgerð
 - Þunglyndi og kransæðasjúkdómur
 - Fylgikvillar kransæðastíflu
- Hjartabilun
 - Hjartasláttartruflanir við bráða kransæðastíflu
 - Snemmkomin gollurshúsbólga og heilkenni Dresslers
 
 - Hjálparhjarta
 - Hjartaígræðsla
 
Ástand: gott, ekkert krot né nafnamerking sem ný







Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.