Kaupmaðurinn á horninu – Óskar í Sunnubúðinni segir frá

Óskar Jóhannsson var „kaupmaðurinn á horninu“ í fjóra áratugi. Í þá daga voru um 200 matvöruverslunar í Reykjavík. Kaupmaðurinn á horninu var í nánum tengslum við viðskiptavini sína. Hann lánaði, spjallaði og tók þátt í lífi fólksins í hverfinu. En hann bjó að ýmsu leyti við erfiðar aðstæður — á tímum hafta, vöruskorts og samkeppni við stórmarkaði. Sérstaklega reyndust óbilgjörn verðlagsyfirvöld honum erfiður ljár í þúfu þegar verðbólga fór úr böndum. Öllu þessu lýsir Óskar með lifandi hætti sem gerir þessa bók ekki aðeins fróðlega og skemmtilega aflestrar heldur einstaka heimild um mannlíf fyrr á tíð. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Bókin Kaupmaður á horninu – Óskar í Sunnubúðinni segir frá eru 57 kaflar +viðaukar, þeir eru:
  • Óskar í Sunnubúðinni
  • Í fóstri hjá frænku
  • Haftatíminn
  • Sendisveinn í KRON á Skólavörðustíg
  • Innanbúðar í KRON
  • Uppsögn hjá KRON
  • Leðurgerðin og Sylgja
  • Svifið á Sandskeiði
  • Aftur í KRON
  • Englandsferð
  • Óvænt tíðindi
  • Svíðþjóðarferð
  • Oslóardvöl
  • Verslunarstjóri KRON á Langholtsvegi
  • Bílpróf og bíll
  • Pólitísk verslun
  • Kvonfang
  • Kaupin á Sunnubúðinni
  • Sunnubúðin
  • Matvörubúðir í gamla daga
  • Tilboð í Hólmgarð
  • Sunnubúðunum fjölgar
  • „Auðvald“ og „óvinir fólksins“
  • Kjötflutningur í verkfallinu
  • Kartöflustríðið
  • Fyrsta kjörbúðin í Hlíðunum
  • „Vísitölufjölskyldan“
  • Húsbygging
  • Sagan um einseyringinn
  • Óbilgirni verðlagsyfirvalda
  • Sala á gosdrykkjum
  • Sumarbústaður
  • Pöntunarfélög
  • Kærður fyrir 25 aura okur
  • Félagsstörf í þágu kaupmanna
  • Ávaxtanefndin
  • Fjórða Sunnubúðin
  • Deilt við Hagkaup
  • Sunnubúðinni skipt
  • Kvöldsölugjald
  • Hvar er kjötið mitt?
  • Stefgjöld vegna útvarps árið 1975
  • Fjölskyldan
  • Mjólkursölumálið
  • Ritstjórnargrein í Verslunartíðindum
  • Síðasti söludagur í gær – eitrað í dag!
  • Að éta ljón og verða sterkur
  • Nú er öldin önnur
  • 59. grein skattalaganna
  • Hvernig Jón bakari gerðist lögbrjótur
  • Sunnubúðin í Mávahlíðinni seld
  • Tandy Radio Shack
  • Hjá borgarverkfræðingi
  • Einar í Sörlaskjóli leggur árar í bát
  • Félagsstöf í ellinni
  • Frá Suðurúsum á Skúlagötu
  • Horft um öxl
  • Viðauki
    • Mannanöfn

Ástand: Gott

Kaupmaðurinn á horninu - Óskar í Sunnubúðinni segir frá - Höfundur: Jakob F Ásgeirsson - Ugla útgáfa 2014

kr.1.800

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,9 kg
Ummál 18 × 3 × 25 cm
Blaðsíður:

288 +myndir +mannanöfn: bls. 287-288

ISBN

9789935210555

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Bókafélagið Ugla

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2014

Hönnun:

Aðalsteinn S Sigfússon (kápuhönnun), Guðmundur Ingvarsson (kort), JFÁ/Ugla (umbrot), Kristinn Ingvarsson (mynd á baksíðu)

Höfundur:

Jakob F. Ásgeirsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Kaupmaðurinn á horninu – Óskar í Sunnubúðinni segir frá”