Járnkarlinn Matthías Bjarnason ræðir um ævi sína og viðhorf

Í bókinni fjallar Matthías Bjarnason m.a. um bernskuárin á Ísafirði, fjölbreytt störf og nám. Hann lýsir fyrstu kynnum sínum af forkólfum Sjálfstæðisflokksins, lýsir atvinnulífi og segir frá framboðsferðum fyrir vestan og er margar sögur að finna í bókinni af samferðamönnum og ýmsum atburðum, m.a. á vettvangi stjórnmálanna þau 30 ár sem Matthías hefur setið á Alþingi.

Sérstakir kaflar eru um ráðherrastörf Matthíasar, landhelgisstríð, stjórnarmyndunarviðræður og átök innan Sjálfstæðisflokksins og í lokin eru ummæli nokkurra samferðamanna um Matthías.

Matthías sagðist hefðu kosið að fjalla meira um ýmis mál en hann hefði gert í bókinni og nefndi landhelgismálið sérstaklega sem hann sagði að hefði getað orðið efni í heila bók. Sjónarmið mannúðar og samhjálpar

„Þótt farið sé yfir alla ævi Matthíasar og starf, þá er hans staða í nútímanum þungamiðja í þessari bók og hvaða augum hann lítur umhverfi sitt, pólitíkina í dag og þá möguleika sem við höfum sem þjóð til að vinna okkur út úr vandamálunum,“ sagði Örnólfur Árnason.  (Heimild: MBL 2. desember 1993)

Bókin Járnkarlinn Matthías Bjarnason ræðir um ævi sína og viðhorf, hefur ekkert efnisyfirlit.

Ástand: gott

Járnkarlinn Matthías Bjarnason - Örnólfur Árnason

kr.1.600

1 á lager

Vörunúmer: 8502077 Flokkur: Merkimiðar: , , , ,

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,700 kg
Ummál 16 × 3 × 24 cm
Blaðsíður:

312 +myndir +nafnaskrá: bls. 301-312

ISBN

978997957190X

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Skjaldborg

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1993

Höfundur:

Örnólfur Árnason

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Járnkarlinn Matthías Bjarnason ræðir um ævi sína og viðhorf”