Í gylltum ramma
Saga Sigríðar Þorvaldsdóttur leikkonu
Sigríður á að baki glæsta sigra á leiksviði, ekki síst sem söngleikjastjarna, og varð fegurðardrottning Íslands ung að árum. Hún varð yngst kvenna til að ljúka námi sem hárgreiðsludama og prófi frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins, 17 ára! Á hátindi frægðarinnar fékk hún heilablæðingu og varð að læra málið aftur. Hún lét þó ekki bugast og vann sigur á ný.
Í gylltum ramma er skemmtileg bók með fjölda mynda, að sjálfsögðu héðan (úr einkalífi, af leiksviði, frá alþingi, af ýmsum viðburðum) en einnig frá Hollywood, Langasandi, Dallas (leikkona í þrjú ár), Noregi, Frakklandi (leikferðir) og Grikklandi. Í gylltum ramma er saga lífsglaðrar og bjartsýnnar konu sem hefur sannarlega þurft á þeim eiginleikum að halda. (Heimild: Bókatíðindi)
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.