Hver er ég? Bókin um stjörnuspeki

Í Hver er ég? – bókinni um stjörnuspeki – eru töflur sem spanna tímabilið 1920 – 2040. Það gerir þér kleift að gera persónulýsingu fyrir sjálfan þig, vini, vinnufélaga, maka, kærasta, foreldra, börn og barnabörn, alla sem þú hefur áhuga á að kynnast betur. Þú getur lesið um grunneðli og lífsorku fólks, tilfinningar þess hugsun, ást, samskipti og framkvæmdamáta. Bent er á það sem þarf að varast og vísað á leiðir til að auka orku þína og ná þar með betri árangri í lífinu. Þar upplýsingar sem Hver er ég? gefur eru því verðmætar, svo ekki sé meira sagt.

Hver er ég? fjallar einnig um sögu stjörnuspekinnar, alheiminn, eðli þekkingar og sálfræði. Heimspekin, sem liggur til grundvallar, er sú að maðuer og náttúra eru eitt. Til að lifa hamingjuríku lífi þarf hver maður að lifa í jafnvægi við náttúrulegt upplag sitt. Hver er ég? vísar þar veginn.. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Bókin Hver er ég? er skipt niður í 15 kafla og undirkafla, þeir eru:

  • Stjörnumerkin
    • Hrúturinn
    • Nautið
    • Tvíburinn
    • Krabbinn
    • Ljónið
    • Meyjan
    • Vogin
    • Sporðdrekinn
    • Bogmaðurinn
    • Steingeitin
    • Vatnsberinn
    • Fiskurinn
  • Heimurinn
  • Saga
  • Kenningar
  • Kerfi stjörnuspekinnar
  • Þroskaskeið og lífshjól
  • Orka
    • Lífsorka
    • Tilfinningaorka
    • Hugarorka
    • Ástarorka
    • Baráttuorka
    • Ímyndarorka
    • Markmiðaorka
    • Þensluorka
    • Samdráttarorka
    • Frelsis- og endurnýjunarorka
    • Einingar- og samkenndarorka
    • Sálar- og kjarnaorka
    • Heilunarorka
  • Tengsl hinna ólíku orkuþátta
  • Þekking
  • Maðurinn
  • Völd
  • Sálfræði
  • Stjörnumerkin þín
    • Grunnelðli og lífsorka
    • Tilfinningar og vanahegðun
    • Hugsun og máltjáning
    • Ást og samskipti
    • Framkvæmdir og sjálfsbjargarhvöt
    • Skýringar á Plánetutöflum
    • Plánetutöflur 1920 til 2040

Ástand: gott

Hver er ég, bókin um stjörnuspeki - Gunnlaugur Guðmundsson

kr.1.800

Ekki til á lager

Vörunúmer: 8501990 Flokkar: , Merkimiðar: , ,

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,850 kg
Ummál 18 × 3 × 25 cm
Blaðsíður:

360 +myndir +stjörnukort fyrir alla fæðingardaga 1920-2040: bls. 239-360

ISBN

9789979995746

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Útgefandi:

Útkall

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2010

Hönnun:

Jón Trausti Bjarnason (umbrot), Næst (kápuhönnun), Ragnar Hafstað (plánetutöflur)

Ljósmyndir:

Rafn Rafnsson (ljósmynd af höfundi)

Teikningar

Gunnar Karlsson, Sól Hrafnsdóttir

Höfundur:

Gunnlaugur Guðmundsson