Húsið

Á Þorláksmessu 1979 kemur upp eldur í húsi á hæð innst í Kollafirði. Sjö ára gamall drengur kemst lífs af úr brunanum en foreldrar hans og tvö yngri systkini farast. Drengurinn er minnislaus en fær martraðir um eld, reyk og ógnvænlegan mann með hamar í hendi.

Seint í nóvember 2007 er Hörður Grímsson kallaður að húsi í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík. Í kjallaranum liggur gamall maður í blóði sínu. Flest bendir til þess að um slys sé að ræða en lögreglumaðurinn er á öðru máli.

Skömmu síðar flytur fjögurra manna fjölskylda inn í afskekkt hús í Kollafirði og draugar fortíðar vakna til lífsins … (heimild: bakhliða bókarinnar)

Ástand: góðar innsíður og góð káp.

kr.500

Ekki til á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,830 kg
Ummál 14,5 × 5 × 22 cm
Blaðsíður:

588

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

ISBN

9789935112811

Útgefandi:

JPV útgáfa

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2012

Ljósmyndir:

Jóhann Páll Valdimarsson (ljósmynd af höfundi)

Hönnun:

Emilía Ragnarsdóttir (kápuhönnun), Halldór B. Kristjánsson (umbrot)

Höfundur:

Stefán Máni