Holtamannabók II, Ásahreppur
Holtamannabók II, Ásahreppur, er fjórða bókin í bókaflokki um nokkrar sveitir í Rangárvallasýslu þar sem rakin er saga bænda og húsmæðra frá fyrstu tíð til nútímans. Áður eru komnar út í þessum flokki bækur um Austur-Landeyjar, Landsveit og Holtahrepp, en í þessari bók segir frá þeim hluta Holtamannhrepps hins forna sem skipt var úr hreppnum árið 1892 og heitir enn í dag Ásahreppur. Gerð er grein fyrir æviferli, ættum og börnum ábúenda eftir því sem heimildir leyfa. Saga eignarhalds á jörðunum er sögð og gömul og ný landamerki skráð. Myndir af fólki og bæjum prýða bókina. Grunnurinn að þessari bók var eins og að öðrum bókum í flokknum lagður af Valgeiri Sigurðssyni fræðimanni á Þingskálum, en viðbætur eru unnar af Ragnari Böðvarssyni og Þorgils Jónassyni sagnfræðingi. Nauðsynlegt rit öllum áhugamönnum um byggðasögu og ættfræði. (Heimild: Bókatíðindi)
Verkið Holtamannabók II Ásahreppur eru 31 kaflar, þeir eru:
- Kort af Ásahreppi
- Orðskýringar
- Formáli
- Inngangur
- Ljóð og nótur
- Bæir í Ásahreppi
- Boðleiðir
- Áshreppur
- Grasbýli og tómthús
- Einstök íbúðahús
- Áshverfi og Vetleifsholtshverfi
- Vinnuhjú
- Einstakar ættfærslur
- Nokkur bæjarnöfn í Ásahreppi
- Þjórsármótin
- Sléttaland
- Myndir
- Nýju lærdómskverin
- Heimavarnalið Levetzovs
- Sparisjóðurinn
- Hreppanefndir
- Myndir
- Holtamannaafréttur
- Kort af afrétti
- Myndir
- Rithandasýnishorn
- Mannfjöldi í Ásahreppi
- Myndir
- Heimildaskrá
- Nafnaskrá
Ástand: gott, bæði innsíður og kápa








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.