Hestar og menn 1993

Árbók hestamanna

Árbók hestamanna, Hestar og menn 1993, kemur nú út í sjöunda sinn. Í bókinni segir frá hestamönnum og hestum þeirra í ferðalögum og keppni bæði hérlendis og erlendis á árinu. Í bókinni eru viðtöl við íslenska og erlenda sýningamenn og ræktendur. Einnig er í bókinni frásögn af ferð tveggja kunnra hestamanna um byggðir og óbyggðir í Vestur-Skaftafellssýslu.

Rakin er saga fjórðungsmóta í Norðlendingafjórðungi í máli og myndum. Hræddur við hesta en er nú orðinn þekktur tamninga- og sýningamaður. Fór á miðjum degi úr skólanum upp í hesthús. Þýsk kona varð óvænt heimsmeistari í fjórgangi og tölti. Vel á annan tíma á leið yfir stórfljót. Íslendingur heimsmeistari í hestamennsku. Sextán ára unglingur hætti við að kaupa sér bíl og keypti í staðinn keppnishest og komst með hann á heimsmeistaramót fyrir íslenska hesta í Hollandi nú í sumar. Sex vetra gæðingur úr Skagafirði sigraði í B-flokki gæðinga á fjórðungsmóti Norðlendinga nú í sumar.. (Heimild: Formáli bókarinnar)

Bókin Hestar og menn 1993 eru 11 kaflar, þeir eru:

  • Saga fjórðungsmóta á Norðurlandi
  • Fjórungsmót á Vindheimamelum
  • Myndir af ræktunarbúum á fjórðungsmótinu
  • Vignir Siggeirsson
  • Jóhann Þór Friðgeirsson
  • Tveir á ferð um V-Skaftafellssýslu
  • Íslandsmót á Akureyri
  • Heimsmeistaramót í Hollandi
  • Sigurður Vignir Matthíasson
  • Jolly Schrenk
  • Úrslit móta

Ástand: gott, ekkert krot né nafnamerking

Hestar og menn 1993 Árbók hestamanna 1993 - Guðmundur Jónsson og Þorgeir Guðlaugsson

kr.1.300

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,840 kg
Ummál 23 × 2 × 24 cm
Blaðsíður:

255 +myndir

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Útgefandi:

Skjaldborg

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1993

Höfundur:

Guðmundur Jónsson, Þorgeir Guðlaugsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Hestar og menn 1993”