Harpa minninganna: Árni Thorsteinson minningar
Endurminningar Árna Thorsteinson tónskálds. Auk þess að vera brautryðjandi í sönglífi landans rak Árni ljósmyndastofu í Reykjavík um tuttugu ára skeið. Árni var fæddur 1870 og horfði upp á Reykjavík þróast úr 2000 manna bæ í borg með 60.000 íbúa.
Í ævisögu þessa aldna Reykvíkings – Hörpu minninganna – blandast þróuin fæðingarborgar hans og afskipta Árna af mennningarmálum og þá sérstaklega tónlistarmálum landsmanna. Ævisaga segir frá æsku hans og uppvexti í landsfógetahúsinu við Austurstræti, kynnum hans við merka menn og málefnum eins og hann sá þau um 80 ára skeið. Látleysi og góðlátleg kímni einkenna frásögnina sem iðar af lífi og flaðværð, en speglar þó fyrst og fremst hinar bjartari hliðar mannlífsins. – Árni Thorsteinson er einn af brautryðjendum tónlistarmálanna hér á landi. Starf hans í þágu þeirra verður seint metið að verðleikum, og söngmálastarfs hans er svo nátengt lífi hans og starfi, að þessi ævisaga Árna er um leið söng- og tónlistarsaga þessa tímabils. – Í bókinni eru um 80 ljósmyndir af einstaklingum og hópum, en Árni starfaði um árabil sem ljósmyndari hér í bæ. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
- Æskustöðvar við Austurvöll
- Konungshljómsveitin á Skólabrú 1871
- Margt var sér til gamans gert
- Jólin heima
- Í barnaskóla hjá Helgesen
- Skyggnzt til skipaferða
- Reykjavík alþjóðlegur sjámannabær
- Sólarlagssöngur og guðaveigar
- Alþingi, menn og minjar
- Með prófastinum í Görðum
- Ferming og fræðarar
- Skólinn – og „rall“ og „ball“
- Nokkrir bekkjarbræður og brek í skóla
- Stúdentaskál í Skildinganesshólum
- Fyrsta utanförin
- Með frændum fjarri fósturbyggð
- Hafnarstúdentar og visin á Garði
- Í stúdenasöngfélginu danska
- Sögufrægir menn í sjónhending
- Ljósmyndafræði og söngnám
- Tilhugalíf og hjúskapur
- Starfsárin
- Lögin og ljóðskáldin
- Í söngfélögum er gott að vera
- Stúdentafélagið og stúdentsafmæli
- Upphaf sögnlistar á Íslandi
- Söngur Skólapilta
- Harpa, 14. janúar og sönglífið til aldamóta
- Nokkrir brautryðjendur
- Helztu söngvarar og kórar
- Fyrstu hljómsveitirnar og forystumenn þeirra
- Söng- og hljómleikaskrár frá 1900-1935
- Eftirmáli – og tónverkaskrá
Ástand: gott, laus við allt krot.








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.