Halla
Ljóðabálkur Steins Steinarrs um hana Höllu, með myndum Louisu Matthíasdóttur, hafði næstum lent í glatkistunni. Röð atvika varð til þess að brotakenndar fregnir af myndskreyttu ljóði og afdrifum þess féllu saman í eina mynd. Tvöfalt listaverk kom í leitirnar á þessu ári. Halla litla er kát og lífsglöð stúlka. Hún býr hjá afa sínum og er aflakló eins og hann. Lífið er þó ekki aðeins leikur og ævintýrin geta orðið háskaleg. En allt fer vel að lokum. Ljóðið orti Steinn um 1940 en nú fyrst geta börn á öllum aldri fagnað löngu tímabærri útgáfu. Myndir Louisu auðga ljóðið og gleðja augað. (Heimild: Bókatíðindi)
Ástand: Innsíður góðar
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.