Hálendið í náttúru Íslands
Þessi glæsilega bók er fræðirit handa almenningi, tilraun til að opna sýn á náttúru hálendisins í allri sinni dýrð og örva menn til óbyggðaferða. Frá smæsta blómi til hæstu fjalla lifnar íslenska hálendið á síðum bókarinnar í einstæðu samspili fróðleiks og myndefnis. Höfundur fléttar saman náttúrufræði, bókmenntir, þjóðtrú og sagnfræði og sýnir hvílíkan þjóðararf Íslendingar eiga í ósnortnum víðernum landsins. Þegar við bætast gullfallegar ljósmyndir, kort og töflur verður til ein stórkostlegasta bók sem nokkru sinni hefur komið út á íslensku. Þetta er fjórða bókin í röð stórra náttúrufræðiverka sem öllum er ætlað að vera fræðirit handa almenningi sem þekkja vill landið sitt, Ísland, og vernda það. (Heimild: Bókatíðindi)
Hlaut: Íslensku bókmenntaverðlaunin, fræðirit 2000
Bókin Hálendið í náttúru Íslands eru 8 kaflar, þeir eru:
- Formáli
- Arfurinn óvænti
- Arfurinn óvænti
- Úr ýmis holdi …
- Steinar tala …
- Á vit öræfa
- Á vit öræfa
- Hún þögla fjallabyggð
- Þjóðleiðir og þræðingar
- Neisti lands og þjóðar
- Þjóð í álögum
- Jörð, land og þjóð
- Eftirmáli
- Heimildaskrá
- Nafna- og atriðisorð
Ástand: Gott