Gúri og Frílsi í háska

Vinirnir Gúri og Frílsi ætla heldur betur að skemmta sér á hrekkjuvökunni. Margt fer þó öðruvísi en ætlað er og áður en fjörið byrjar lenda þeir í ótrúlegum hremmingum …

Disney bók þessi byggir á bók eftir enska rithöfundinn A. A Milne (f. 18. janúar 1882 – d. 31. janúar 1956). Fyrsta bókin kom út þann 14. október árið 1926 og heitir „Winnie the Pooh“, á frummálinu. Bangsinn ljúfi í sögum Milne dró nafn sitt af leikfangabangsa Christopher Robins, sonar Milne. Nokkrar aðrar persónur í sögum Milne voru skírðar eftir tuskudýrum Robins, svo sem Eyrnaslapi (Eeyore) og Grislingur (Piglet).
Bangsi Robins hét í fyrstu Edward Bear en Robin gaf honum síðan nafnið Winnie eftir birni í dýragarðinum í London sem sonur hans hafði dálæti á. Sá björn var í dýragarðinum frá árinu 1919 til 1934 og kom upphaflega frá Winnipeg í Kanada og dró nafn sitt af borginni, stytt sem Winnie. Nafnið Pooh var upprunalega heiti á svani sem oft sást á landareign Milne. (Heimild: Vísindavefur.is / JGÞ; Wikipedia )

Ástand: kápan er í góðu formi og innsíðurnar góðar.

Gúri og Frílsi í háska - Disneybók

kr.400

1 á lager

Vörunúmer: 8503552 Flokkur: Merkimiðar: , , , , Brand:

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,196 kg
Ummál 16,5 × 0,7 × 24 cm
Blaðsíður:

42 +myndir

Heitir á frummáli

Pooh Halloween

ISBN

9789979219156

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Útgefandi:

Vaka-Helgafell

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2006 (1. útgáfa)

Íslensk þýðing

Pétur Ástvaldsson

Höfundur:

Walt Disney / A. A. Mine (byggt á sögu hans)