Fórnarmýrin
Mýrin er víðáttumikil auðn, þakin gráum kræklóttum gróðri. Í eina tíð voru guðunum hér færðar mannfórnir og sagan segir að enn þann dag í dag hverfi menn sporlaust í þessu votlendi.
Nathalie Ström hefur snúið aftur á bernskustóðir sínar til þess að vinna að doktorsritgerð um mýrlendi. Fljótlega kemur í ljós að erindi hennar er annað og persónulegra. Þegar lík finnst í mýrinni gefst Nathalie – og lögreglunni – tilefni til þess að sökkva sér ofan í fortíðina. Gamalt óréttlæti, átakanlegar uppgötvanir og djúpt grafin leyndarmál koma upp á yfirborðið, bæði í mýrinni og í minningum. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Fórnarmýrin var eitt eftirsóttasta handritið á Bókasýningunni í London árið 2017.
Ástand: gott, laus við allt krot eða nafnamerkingu
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.