Ísprinsessan
Sögusvið Ísprinsessunnar er í Fjällbacka, fæðingarbæ Camilla Läckberg. Í bókinni bregður Camilla upp mynd af lokuðu samfélagi þar sem allir vita allt um alla og álit út á við skiptir höfuðmáli. Nokkuð sem getur haft örlagarík áhrif við rangar aðstæður.
Í jaðri hins friðsæla bæjar Fjällbacka stóð autt og yfirgefið hús. Þegar vetraði nísti kuldinn þar hvern krók og kima. Vatnið í baðkerinu var frosið og konan sem lá í frosnu baðinu var farin að blána. Blóðið var löngu storknað. En maðurinn sem horfði á hana hafði aldrei elskað hana heitar en einmitt þá.(Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott laus við allt krot og nafnamerkingu
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.