Flugukast norræna aðferðin
Höfundur er listamaður í að handleika flugustöng og dugmikill kennari. Í þessari bók eys hann úr brunni visku sinnar um kúnstina að kasta flugu eins og best verður á kosið. Í áranna rás hefur hann ferðast vítt um heim og bleytt flugur sínar hvar sem laxar eða sjóbirtingar bæra ugga. Reynsla hans og kunnátta í flugukasti og veiðum er víðkunn, einnig hér á landi. Um 400 ljósmyndir og teikningar prýða bókina – margar myndanna eru teknar á Íslandi. (Heimild: Bókatíðindi)
Bókin er skipt niður í 11 kafla og undirkafla, þeir eru:
- Eðlifræði flugukastsins
- Val á búnaði
- Baklína, rennilína, kastklumpar og taumar
- Yfirhandarkast með einhendu
- Norrænt speykast með einhendu
- Einfalt og tvöfalt tog
- Kastað með tvíhendu
- Háþróuð kastaðferð með tvíhendu
- viðhald fluguveiðibúnaðar
- Traustir hnútar
- Æfingin skapar meistarann
Ástand: gott innsíður, kápa þreytt








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.