Fjölskylda fyrir byrjendur
Dásamleg saga um ást, vináttu, sorg, fjölskyldulíf og fyrirgefningu
Flora Donovan er í draumastarfinu, einhleyp í New York, borginni sem aldrei sefur. Undir glaðlegu yfirborðinu leynast hins vegar djúpur einmanaleiki og átakanlegt leyndarmál. Flora er munaðarleysingi og hefur aldrei fundist hún tilheyra neins staðar … þar til hún kynnist Jack Parker og dætrum hans, Izzy og Molly.
Izzy býr líka yfir leyndarmáli sem hún getur ekki deilt með neinum. Síðan móðir hennar lést ári áður hefur hún fundið öryggi í því að hugsa um pabba sinn og litlu systur. Þegar hún er kynnt fyrir nýrri vinkonu pabba síns virðist hennar versta martröð ætla að rætast.
Nýja sambandið reynist Floru mikil áskorun. Hún þarf ekki aðeins að brjótast undan minningu Beccu, hinnar fullkomnu eiginkonu Jacks, fást við táning í sárum og syrgjandi æskuvinkonu, heldur einnig sjálfa sig og drauga eigin fortíðar sem geta eyðilagt allt sem hana hefur dreymt um. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott, laus við allt krot eða nafnamerkingu.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.