Eimskip frá upphafi til nútíma

Í þessari bók er saga Hf. Eimskipafélags Íslands rakin frá ári til árs, frá stofnun félagsins 1914 til ársloka 1997. Meginatriði eru dregin saman í yfirlitsköflum. Sérkaflar eru um aðdraganda að stofnun félagsins, hlutahafa og hlutafé og vaxtarsprota starfseminnar. Í inngangskafla er að finna niðurstöður og ályktanir bókarinnar.

Ritið byggis á umfangsmikilli könnun frumheimilda í skjalasöfnum, einkum skjalasafni Eimskipafélagsins. Um fjögur hundruð ljósmyndir, gamlar og nýjar, þar á meðal af flestum núverandi starfsmönnum félagsins, prýða bókina. Hafa fæstar myndanna birsta áður. Ítarleg skrá yfir nöfn og atriðisorð gerir efnið mjög aðgengilegt fyrir lesendur.

Saga Eimskipafélagsins er með margvíslegum hætti samofin þjóðsögu Íslendinga á tuttugustu öld. Hún er saga sjálfstæðisbaráttunnar, saga atvinnu- og viðskptalífs, efnahags- og stjórnmála og ekki síst einstaklinga sem áttu stóran þátt í að ryðja nútímanum braut á Íslandi. Hér er náma til fróðleiks og íhugunar. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Bókin Eimskip frá upphafi til nútíma er skipt eftir árum með undantekningum, þeir eru:

  • Megindrættir 1914-1997
  • Upphaf Eimskipafélagsins
  • Kaflar eftir árum frá 1914-1938
  • Yfirlit 1914-1938
  • Kaflar eftir árum frá 1939-1945
  • Yfirlit 1939-1945
  • Kaflar eftir árum 1946-1961
  • Yfirlit 1946-1961
  • Kaflar eftir árum 1962-1978
  • Yfirlit 1962-1978
  • Kaflar eftir árum 1979-1997
  • Yfirlit 1979-1997
  • Ný vaxtarsvið
  • Hlutafélagið
  • Stjórnendur
  • Skipatal
  • Lykiltölur úr rekstri Eimskipafélagsins 1997
  • Starfsfólk og sarfssvæði Eimskipafélagisn 1997
  • Samýkktir Hf. Eimskiptafélags Íslands
  • Viðauki
    • Myndaskrá
    • Heimildaskrá
    • Nöfn og atriðisorð

Ástand: gott,  bæði innsíður og kápa

Eimskip frá upphafi til nútíma - Guðmundur Mangússon

kr.2.500

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 1,620 kg
Ummál 22 × 4 × 30 cm
Blaðsíður:

424 +myndir +kort +línurit +ritsýni +töflur +uppdrættir +Skrá yfir nöfn og atriðisorð: bls. 394-424

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Eimskiptfélag Íslands

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1998

Höfundur:

Guðmundur Magnússon

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Eimskip frá upphafi til nútíma”