Drottningarfórnin
Elizabeth Meyer, hinn eitilharði og stórbrotni formaður danska Jafnaðarmannaflokksins, gæti orðið fyrsti kvenforsætisráðherra landsins. Framundan eru tvísýnar kosningar í skugga morðhótana hryðjuverkamanna og blóðugra átaka milli innflytjenda og hægriöfgamanna; aðstæður sem neyða hana til sársaukafulls uppgjörs við gyðinglegan bakgrunn sinn og fortíðina. Enginn veit þó að Meyer á sér leyndarmál sem er eins og tifandi tímasprengja, leyndarmál sem hún varðveitir af grimmd en er óðum að missa tökin á.
Drottningarfórnin er æsispennandi saga um miskunnarlausa valdabaráttu og þær fórnir sem þarf að færa til að komast til æðstu metorða. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott, laus við allt krot eða nafnamerkingu.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.