Spilabókin
Allir helstu spilaleikir og spil
Spilabókin er eins konar kennslubók í spilamennsku. Í henni er lýst 68 spilum, auk fjölmargra afbrigða. Hún spannar sem sagt allt spilalitrófið frá einföldustu barnaspilum til flóknustu spila – frá lönguvitleysu og svartapétri til brids og tarokspila.
Lýsingar eru þannig fram setta að auðvelt er að læra af þeim spillin ef viðkomandi hefur spil við höndina. Og síðan eru oftast nokkrar ábendingar um hvað beri að varast og hvernig sé vænlegast að haga spilaminnskunni til vinnings.
Lýsingar flóknustu spilanna, svo sem brids, eru vissulega miðaðar við byrjendur, en af þeim er þó unnt að verða frambærilegur spilar.
Spilabókin er endurútgáfa Spilabókar AB sem Þórarinn Guðmundsson menntaskólakennari tók saman. Sú bók kom fyrst út árið 1989 og hefur lengi verið áfáanleg. (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Bókin Spilabókin er skipt niður í 21 kafla, þeir eru:
- Svartipétur
- Púkk
- Kasína
- Marías
- Ólsen-ólsen
- Sjöspilakapall
- Kribba
- Tuttuogeinn
- Póker
- Rommí
- Kanasta
- Gosi
- Lander
- Alkort
- Manni
- Skat
- Lomber
- Vist
- Brids
- Tarok
- Orðalisti
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.