Bör Börsson

Líklega eru fáar bækur til á íslensku sem lýsa jafn skemmtilega nýríkum og fáfróðum athafnamanni og Bör Börsson, enda sló sagan rækilega í gegn er Helgi Hjörvar las hana í útvarp árið 1944. Fundum og mannamótum var aflýst á upplestrartíma og göturnar tæmdust svo helst mætti jafna við Eurovision keppni nútímans og persónur sögunnar voru óspart heimfærðar upp á samtíma Íslendinga.

Höfundur verksins Johan Falkberget, var meðal virtustu skálda sinnar kynslóðar í Noregi á fyrri helmingi þessarar aldar. Saga hans um Bör Börsson kom fyrst út 1920 og var prentuð í mörgum útgáfum. Urðu vinsældirnar slíkar að Falkberget bætti síðar við annarri sögu um Bör. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Ástand: gott, innsíður góðar en hlífðarkápan þreytt

Bör Börsson - Johan Falkberget

kr.1.900

Ekki til á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,520 kg
Ummál 15 × 3 × 22 cm
Blaðsíður:

206 +myndir

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Almenna bókafélagið

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1988 (1. prentun 1940)

Íslensk þýðing

Helgi Hjörvar

Höfundur:

Johan Falkberget

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Bör Börsson – Uppseld”