Bókin með svörin
Fáar bækur hafa vakið jafn mikla lukku á síðustu árum. Hér er er ekkert að finna nema svör og það svör við öllum spurningum, hvort sem þær eru: „Á ég að gifta mig?“ eða „Á ég að fá mér kaffi?“ Það eina sem þarf að gera er að leggja aðra hönd á bókina í nokkrar sekúndur og einbeita sér að spurningunni, opna hana síðan á þeim stað sem andinn blæs manni í brjóst og þá blasir svarið við. Frábær tækifærisgjöf fyrir alla sem hafa gaman af því að blaða í bókum en hafa hins vegar ekki eirð í sér til að lesa þær. (Heimild: Bókatíðindi)
Ástand: gott, innsíður mjög góðar
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.