Barnasálfræði frá fæðingu til unglingsára
Þessi bók er ætlað að vera vegvísir handa uppalendum og öðrum sem sinna málefnum barna. Hún fjallar um þroska þeirra frá fæðingu til unglingsára og er fyrsta íslenska bókin sinnar tegundar. Annars vegar er lýst eðlilegum þroskaferli og sérkennum hvers aldursskeiðs um sig og hins vegar tekið á einstökum atriðum. Má þar nefna kafla um foreldrahlutverkið og annan um mótun barns í fjölskyldu, þar sem meðal annars er rætt um einkabörn og tvíbura. Staldrað er við breytingar og álag sem komið geta upp í lífi barna, svo sem missi ýmisskonar skilnað foreldra, búferlaflutninga og stjúpfjölskyldu. Þá er fjallað um sálræna erfiðleika barna og hegðunarvandkvæði og loks afmarkaða þætti, til dæmis svefnvenjur, aga, ofbeldi, leik og sköpun, kynhlutverk, vinnáttu, umferðina og fleira. (Heimild: bakhluti bókarinnar)
Bók þess var endurútgefin í kilju árið 2003.
Bókin Barnasálfræði frá fæðingu til unglingsára er skipt niður í átta kafla + undirkaflar, þeir eru:
- Foreldrahlutverkið
- Þroski barna frá fæðingu til 6 ára aldurs
- Þroski barna 7-12 ára barna
- Mótun barns í fjölskyldu
- Breytingar og álag í lífi barna
- Raunveruleiki íslenskra barna
- Sálfrænir erfiðleikar
- Einstök umfjöllunarefni
- Auka: Heimildaskrá og atriðisorðaskrá
Ástand: innsíður góðar en lausa kápan þreytt
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.