Ásgeir Ásgeirsson ævisaga
Ævisaga Ásgeirs Ásgeirssonar er persónusaga í orðsins besta skilningi, en endurspeglar jafnframt helstu viðburði Íslandssögunnar á þessari öld. Hann var guðfræðingur og hugðist gerast prestur í sveit þó að örlögin ætluðu honum annan hlut og átakameiri. Tímamót urðu í lífi Ásgeirs er hann hóf afskipti af stjórnmálum, en hann sat á Alþingi í nær áratug. Hér er lýst stormasamri tíð hans sem fjármála- og forsætisráðherra, svo og átökum innan Framsóknarflokksins sem lyktaði með því að Ásgeir kvaddi hann og gekk til liðs við Alþýðuflokkinn.
Árið 1952 vann Ásgeir einn stærsta persónulega kosningasigur í sögu þjóðarinnar er hann var kjörinn forseti lýðveldisins – gegn vilja og valdi forystumanna tveggja stærstu stjórnmálaflokka landsins. Þar varð þjóðarviljinn flokksvaldinu yfirsterkari. Embætti forseta gegndi hann í sextán ár með dyggum stuðningi konu sinnar, Dóru Þórhallsdóttur, enda nutu þau hylli og ástsældar þjóðarinnar. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Ásgeir Ásgeirson ævisaga er skipt niður í níu kafla +viðauka, þeir eru
- Blíðlátir bernskudagar
- Á tveimur landshornum
- Eins og eldur
- Vestur á fjörðum
- Ráðherra á kreppuárum
- Leiðarstjarna lýðræðis
- Gegn flokksvaldi
- Á forsetastóli í sextán ár
- Ævilog
- Viðauki
- Eftirmáli
- Niðjar Dóru Þórhallsdóttur og Ásgeir Ásgeirssonar
- Heimildaskrá
- Nafnaskrá
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.