Ævintýradalurinn – Enid Blyton
Villi, vinur fjórmenninganna og Kíkis, hefur boðið þeim öllum í næturflug í flugvélinni sinni. En á flugvellinum gerast óvæntir atburðir – skothvellir kveða við í myrkrinu – flugvélin hefur sig á loft – og allt í einu átta Jonni, Anna, Finnur og Dísa sig á því að þau eru í skakkri flugvél! Það eru ekki Villi og vinur hans sem sitja við stjórntækin, heldur tveir ókunnir náungar, sem ekki hafa orðið krakkanna varir. Eftir langa flugferð er lent í djúpum eyðidal þangað sem engum er fært nema fuglinum fljúgandi. Hvaða erinda eiga karlarnir í þenna dularfulla dal? Eru þeir harðsvíraðir glæpamenn? Og hvernig á fjórmenningunum og Kíkí að takast að sleppa frá þeim og út úr dalnum? Ævintýradalurinn bjó sannarlega yfir mörgum og undarlegum leytndarmálum. (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.