Guðrún Helgadóttir

Guðrún Helgadóttir, rithöfundur fæddist í Hafnarfirði þann 7. september 1935 og ólst þar upp í stórum systkinahópi. Hún gaf út sína fyrstu bók, Jón Odd og Jón Bjarna, árið 1974 tæplega fertug að aldri og hefur upp frá því verið einn vinsælasti og virtasti barnabókahöfundur Íslands. Síðan hefur Guðrún sent frá sér á þriðja tug bóka sem þúsundir íslenskra barna hafa alist upp við og notið.

Árið 2005 kom út safn greina um verk Guðrúnar Helgadóttur eftir ýmsa fræðimenn undir heitinu Í Guðrúnarhúsi.

Guðrún Helgadóttir hefur hlotið ýmiss konar verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín. Árið 1992 fékk hún Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir bók sína Undan illgresinu, árið 1994 Barnabókaverðlaun skólamálaráðs Reykjavíkur fyrir Litlu greyin, árið 2005 fékk hún Bókaverðlaun barnanna fyrir bókina Öðruvísi fjölskylda og síðar sama ár Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir framlag sitt til íslenskrar tungu.

Hér eru þær bækur sem til sölu eru á Bókalind.