Sagnir úr Garði og Sandgerði
Í þessari bók leitar Hildur Harðardóttir víða fanga og niðurstaðan er skemmtilegar og fróðlegar sagnir um lífið í Garði og Sandgerði allt frá landnámi fram á tuttugustu öld. Bókin á erindi við unga sem aldna. Heimamenn munu sannarlega njóta bókarinnar og vafa lítið skiptast á skoðunum og fleiri sögnum en mestur er fengurinn fyrir ungmenni í Garði og Sandgerði. Með sögnunum skyggnast þau inn í framandi heim þjóðtrúar og hindurvitna og ímyndaraflið fær lausan tauminn. Staðreyndir um gamlan tíma sem fléttast inn í sagnirnar eru grunnur að þeirra eigin heimi. Bókin er skemmtileg fyrir þá gesti sem heimsækja Garð og Sandgerði og ferðast um sögusviðið. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ritröðin Sagnir úr Garði og Sandgerði er skipt niður í 3 kafla, þeir eru:
- Brot úr sögunni (33 sagnir)
- Sangir úr Garði (31 sagnir)
- Sagnir úr Sandgerði (20 sagnir)
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.