Tarzan
Fyrsta bókin um Tarzan byrjar á: „Maður sagði mér þessa sögu, sem hafði engan hagnað af …“ Síðan hefst sagan á því að segja frá hinum hörmulegu örlögum foreldra Tarzans, lávarðarins af Greystoke (Johan Clayton) og konu hans (Lafði Alice Clayton), sem bæði farast í frumskóginum. Þá segir frá því, er apynjan Kala hrifsar hinn nýfædda Tarzan til sín og tekur hann með sér sem sitt eigið barn. Þar með hefst hin ævintýralega ævi Tarzans í samfélagi stóru apanna, sem sagt hefur verið frá í mörgum bókum á flestum tungumálum heimsins.
En ævi Tarzan meðal stóru apanna var enginn dans á rósum, og veikburða ungmenni hefði ekki mátt sín mikils í átökum við risastóra apa og önnur villidýr, ef hann hefði ekki í frystu notið verndar og umönnunar Kölu. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: innsíður góðar og kápan góð.