Ráðgátan á Rofabæ
Hér segir frá systkinunum Reyni og Dóru, sem fá hrekkjalóminn Snúð frænda sinn í heimsókn. Á leiðinni kynnist Snúður gömlum og virðulegum manni og telur honum trú um að leynifélagið Græna höndin sé á hælunum á sér. Sá gamli reynist vera afabróðir Reynis og Dóru. Þegar fréttist af furðulegum ránum í nágrenninu er Róbert gamli ekki í vafa um að þar sé Græna höndin að verki, en krakkana grunar þó fremur að ránin tengist fjölleikaflokknum sem Bjarni vinur þeirra starfar með. (Heimild: MBL, 1988)
Þetta er önnur bókin sem Iðunn gefur út í þessum bókaflokk, hin fyrri var Ráðgátan á Rökkurhólum.
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.