Vestfirzkar sagnir I.-III. bindi 1933-1946
Þetta frábæra safn kom út á árunum 1933 til 1946. Og hefur að geyma þrjú bindi og var Helgi Guðmundsson með fyrsta bindið og Arngrímur Fr. Bjarnason seinni tvö. Í formála segir Helgi Guðmundsson: „Við náin kynni mín af gömlum og greindum mönnum á Vestfjörðum, varð mér það ljóst að þar væri mikið af margs konar sögum og sögnum, er geymdust í minni manna og aldrei höfðu verið skrásettar. Ég leit svo á, að það væri skaði fyrir þjóðlegan fróðleik og menningarsögu þjóðarinnar, að sagnafróðleikur þessi færi í gröfina með eldri kynslóðinni. Fann ég hvöt hjá mér að bjarga sem mestu af honum frá glötun, áður en það yrði um seinan.“
Þetta glæsilega safn inniheldur til dæmis: Safn af þjóðsögum, draugasögum, óvættum, huldufólki, draumum, ævintýrum af Vestfjörðum, hrakningum og margt fleira. Eins er í III. bindi Eyðibýli og örnefni í Ísafirði og örnefni að Eyri.
Vestfirzkar sagnir I. bindi
-
- 83 sögur, 440 blaðsíður, Helgi Guðmundsson (tók saman)
Vestfirzkar sagnir II. bindi
-
- 99 sögur, 416, Arngrímur Fr. Bjarnason (tók saman)
Vestfirzkar sagnir III. bindi
-
- 88 sögur, 442 blaðsíður, Arngrímur Fr. Bjarnason (tók saman)
Ástand: Kápan og innsíður góðar








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.