Bærinn brennur

Síðasta aftakan á Íslandi

Árið 1828 myrti Friðrik bóndasonur í Katadal nágranna sinn, bóndann og lækninn Natan Ketilsson á Illugastöðum í Húnavatnssýslu. Ráðskona Natans, Sigríður, og vinnukona hans, Agnes, lögðu á ráðin með Friðriki, eggjuðu og veittu dygga aðstoð. Þremenningarnir brenndu svefnhús Natans til að leyna verknaðinum sem framinn var í auðgunarskyni og hjálpuðust að við að fela þýfið svo að það yrði ekki eldinum að bráð.

Björn Blöndal sýslumaður blés til dómþinga um málið í héraði. Nákvæmar yfirheyrslur yfir sakborningum og sveitungum þeirra eru hér raktar en þær varpa nýju ljósi á málið og færa lesanda nær raunverulegum vettvangi en þekktar sögur munnmælanna.

Þórunn Jarla Valdimarsdóttir hefur skrifað tugi bóka, skáldverk og fræðirit, þar á meðal bækurnar Snorri á Húsafelli, Upp á Sigurhæðir – saga Matthíasar Jochumssonar og Skúli fógeti – faðir Reykjavíkur. Hún kann þá list að lýsa upp kima horfinna hátta og opna dyr inn í heima á mörkum forneskju og upplýsingar.  (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Ástand: gott

Bærinn brennur - síðasta aftakan á íslandi - Þórunn Jarla Valdimarsdóttir

kr.1.800

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,690 kg
Ummál 16 × 3 × 24 cm
Blaðsíður:

349 +myndir +kort

ISBN

9789935292018

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

JPV útgáfa

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2021

Hönnun:

Halla Sigga (kápuhönnun), Guðmundur Þorsteinsson (umbrot)

Höfundur:

Þórunn Valdimarsdóttir

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Bærinn brennur – síðasta aftaka á Íslandi”