Bústaðurinn við ströndina

Cecilia Lapthorne ætlaði aldrei að snúa aftur í Dune-bústaðinn. Hún kemur því sjálfri sér mest á óvart þegar hún stingur af úr eigin sjötugsafmæli til að fara þangað. Staðurinn er afskekktur, en fallegur, og troðfullur af minningum. Sumar góðar, sérstaklega minningarnar um fyrstu árin með eiginmanninum, hinum heimsfræga listamanni Cameron Lapthorne, áður en frægð hans tók að skyggja á hjónabandið.
Dune-bústaðurinn hefur verið Lily griðastaður, þótt hún sé þar í óleyfi. Frá því hún hætti í læknanáminu hefur hún unnið fyrir sér með því að þrífa hús á Höfðanum. Samviskubitið yfir að hafa valdið foreldrum sínum vonbrigðum er yfirþyrmandi en löngunin til að fylgja draumum sínum er yfirsterkari. Bústaðurinn var hinn fullkomni felustaður – þar til Cecilia birtist. En þrátt fyrir vandræðalegt upphaf býður Cecilia Lily að vera um kyrrt og með þeim myndast vinátta.
Svo mætir dóttursonur Ceciliu, Todd, í bústaðinn. Todd sem Lily hefur svo lengi verið ástfangin af. Mun hann veita Lily innblásturinn sem hún þarf til að fylgja draumum sínum? Getur Cecilia sleppt takinu á fortíðinni og horft til nýrrar framtíðar?
Hafa þessar konur hugrekki til að skipta gömlum draumum út fyrir nýja?  (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Ástand: gott, laus við allt krot eða nafnamerkingu.

Bústaðurinn við ströndina - Sarah Morgan - Björt bókaútgáfa 2024 - Kilja

kr.250

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,390 kg
Ummál 13 × 3 × 20 cm
Blaðsíður:

349

ISBN

9789935541741

Kápugerð:

Kilja

Heitir á frummáli

The summer swap

Útgefandi:

Björt bókaútgáfa, Bókabeitan

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2024

Hönnun:

Aðalsteinn Svanur Sigfússon (umbrot)

Íslensk þýðing

Birgitta Elín Hassel, Marta Hlín Magnadóttir

Höfundur:

Sarah Morgan

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Bústaðurinn við ströndina”