Gatið
Umsvifamikill fjárfestir finnst látinn í Gálgahrauni, á hinum forna aftökustað sem blasir við frá Bessastöðum. Barnaverndaryfirvöldum í Reykjavík er tilkynnt um lítinn dreng sem er aleinn og yfirgefinn í ókunnugri íbúð. Og fjórir vinir óttast að leyndarmál þeirra verði afhjúpað. Þessir ólíku þræðir fléttast saman í magnaðri glæpasögu hjá Yrsu Sigurðardóttur.
Við lausn málsins leggja saman krafta sína Huldar lögreglumaður og sálfræðingurinn Freyja sem lesendur þekkja úr fyrri sögum Yrsu; Aflausn, Soginu og DNA, en DNA var valin besta íslenska glæpasagan 2014 og besta glæpasagan í Danmörku 2016. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.