Listin að selja
Sölumaðurinn Tom Hopkins hefur lifað tímana tvenna. Ungur að árum hóf hann sölustörf og kynntist engu nema eymd og volæði. Hann seldi varla nokkurn skapaðan hlut. Í stað þess að gefast upp brá hann á það ráð að afla sér þekkingar í faginu og það gjörbreytti lífi hans, svo ekki sé meira sagt. Á þremur árum varð hann stórauðugur. Í þessari bók boðar hann nýjan stíl í sölumennsku, byggðan á heiðarleika og raunsæju mati á þörfum viðskiptavinanna.
Í þessari bók er að finna ítarlegar ráðleggingar til þeirra sem selja hvers kyns vörur, smár sem stórar. Höfundur fjallar um helstu hindranir sem verða á vegi manna í starfi og skýrir síðan hvernig má komast yfir þær. Hann fjallar m.a. um:
- Val á viðskiptavinum
- Spurningatækni
- Viðbrögð við mótbárum
- Símatækni
- Viðbrögð við afsvari
- Undirbúning
- Hvatningu í starfi
- Hverig gera á út um kaup. (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Bókin Listin að selja eru 14 kafla, þeir eru:
- Um hvað snýst sölumennska
- Tólf sérkenni snjöllustu sölumannanna
- Spurðu rétt og árangurinn er vís
- Skapaðu rétt andrúmsloft
- Hvers vegna …?
- Elskaðu afsvar
- Aflaðu viðskiptavina
- Aflaðu fjár og fram með símanum
- Nýttu kynninguna til fullnustu
- Fyrsti fundurinn
- Þú verður að velja til að selja
- Sigurinn sæti að lokum
- Nokkrar aðferðir til að gera út um kaup
- Gullna reglan
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.