Rafmagn – Fjölfræðibækur AB
Án rafmagns væri þjóðfélag nútímans óhugsandi. Í þessari bók má í máli og myndum finna skýringar á því, hvað rafmagn er, hvernig það birtist og hver áhrif þess eru. Einnig er sýnt, hvernig það er framleitt, hvernig því er dreift og hvernig það er notað nú á dögum. Loks er reynt að skyggnast inn í framtíðina til að sjá hver þróun kann að verað á sviði rafmagnstækni.
Dr. D.R.G. Melville er kanadískur rafmagnsverkfræðingur. Hann lauk verkfræðiprófi í heimalandi sínu en fluttist síðan til Bretlands, þreytti doktorspróf við Lundúnarháskóla og vann nokkra hríð að grundvallarannsóknum í raffræði. Um síðir þreyttis hann þó á háskólafræðunum og veitir nú forstöðu starfshópi er vinnur að hagnýtum rannsóknum á nýtingu rafmagns í Bretlandi. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Rafmagn eru 13 kaflar, þeir eru:
- Inngangur
- Segulmagn
- rafmagn
- Rafmagnsrásir
- Rafmælingar
- Raforkuvinnsla
- Raforkuflutningur
- Rafmagn í iðnaði
- Rafmagn í samgöngum
- Rafmagn í heimilum
- Rafmagn framtíðarinnar
- Lokaorð
- Nöfn og atriðisorð
Ástand: gott bæði kápa og innsíður.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.