Undralæknirinn og sjáandinn Edgar Cayce
Bandaríkjamaðurinn Edgar Cayce sem lést árið 1945, þá 67 ára að aldri, er þvímælalaust einhver sá athyglisverðasti dulspekingur og sjáandi sem um getur á þessari öld.
Hann lauk aldreio barnaskólanámi, en í dásvefni talaði hann reibrennandi erlendar tungur, sá fyrir ævi manna og óorðna atburði, eða lýsti nákvæmlega löngu liðnu atburðum.
Einn undursamlegasti hæfileiki hans var að greina sjúkdóma manna, sem hann hafði aldrei heyrt eða séð, og búsettir voru í margra mílna fjarlægð, eða í öðrum löndum, og ráðleggja lyf eða aðgerðir af svo furðulegri þekkingu, að lærðir læknar fylltust undrun og aðdáun. Þannig hlutu sjúklingar svo þúsundum skipti fullan bata fyrir atbeina hans, og á stundum svo að jaðraði við óskýranleg kraftaverk.
Edgar Cacye sagði fyrir síðari heimsstyrjöldina, sá fyrir jarðskjálfta og náttúruhamfarir, og hafa sumir þeir spádómar verið að rætast að undanförnu, en aðrir eiga – ef til vill – eftir að rætast á þessum áratug, svo sem eins og eyðing New Yorkborgar, Los Angeles og San Francisco. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Undralæknirinn og sjáandinn Edgar Cayce er ekki með efnisyfirlitu, en við skoðun eru kaflarnir 16, þeir eru:
- Sjáandi í svefni
- Maðurinn Cayce
- Tímaákvarðanir Cayce
- Kenningarnar prófaðar
- Jarðskjálftar í Kaliforníu
- Spádómasgáfa Cayce
- Læknarnir og Cayce
- Heimar draumsins
- Læknarnir vakna
- Ólæknanlegir sjúkdómar
- Heimilislyf Cayce
- Heimar draumsins
- Að lokum – Atlantis
- Endurholdgun
- Cayce-börnin
- Leiðarlok
Ástand: gott, ekkert krot né nafnamerking










Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.