Tré og runnar á Íslandi

Íslensk náttúra I

Þessi bók er um tré og runna á Íslandi, sögu þeirra og heimkynni ásamt leiðbeiningum um ræktum og hirðingu. Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur haft frumkvæði að gerð þessarar bókar. Höfundurinn hefur verið græðireitsstjóri félagsins í mörg undanfarin ár og kynnst vandkvæðum garðeigenda. Þá er hann kunnur fyrir mjög vandaða sjónvarpsþætti um skógrækt.

Bókin opnar fólki í raun nýjan heim því í henni eru ýtarlegar lýsingar fjöldi mynda og greiningarlyklar sem lýsa alls rúmlega 500 tegundum og afbrigðum trjáa og runna, sem er að finna hérlendis, auk tegunda sem vaxa í nágrannalöndunum. Á þriðja hundrað myndir og teikningar prýða bókina, þar á meðal fjöldi litmynda teknar af Vilhjálmi Sigtryggssyni framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur. Latnesk plöntuheiti eru þýdd á íslensku og skýrð eru helstu fræðiorð grasafræðinga. (Heimild: Bakhlið bókarinnar).

Bókin Tré og runnar á Íslandi eru 7 kafla, þeir eru:

  • Myndir
  • Tré og runnar. Leiðbeiningar um ræktun og meðferð
    • Um jarðveg
    • Áburður
    • Um gróðursetningu
    • Um limgerði
    • Grisjun, klipping
    • Hirðing
  • Orðaskýringar
  • Tré og runnar. Heimkynni, lýsing, ræktun
    • Berfrævingar – Gymnospermae
    • Dulfrævingar – Angiospermae
  • Skýring og þýðing plöntuheita
  • Heimildaskrá
  • Íslensk plöntuheiti
  • Latnesk plöntuheiti

Ástand: gott

Tré og runnar á Íslandi - Ásgeir Svanbergsson

kr.1.500

Ekki til á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,450 kg
Ummál 15 × 2 × 22 cm
Blaðsíður:

228 +myndir +teikningar +skýring og þýðing plöntuheita: bls. 211-220 +íslensk plöntuheiti: bls. 223-228

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Útgefandi:

Örn og Örlygur

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1982

Höfundur:

Ásgeir Svanbergsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Tré og runnar á Íslandi – Ásgeir Svanbergsson – Uppseld”