Þorvaldur Guðmundsson í Síld og fisk – saga athafnaskálds
Þorvaldur Guðmundsson ólst upp í fátækt hjá einstæðri móður, en varð einn af mestu athafnamönnum síðari tíma og hæsti skattgreiðandi landsins um áratuga skeið. Hann var brautryðjandi í íslensku atvinnulífi á ótrúlega mörgum sviðum, lærði meðal annars ungur niðursuðu og setti á laggirnar fyrstu rækju- og humarverksmiðju landsins.
Lýðveldisárið 1944 kom Þorvaldur á fót sínu eigin fyrirtæki Síld og fisk, sem hann var jafnan kenndur við, og fáum árum síðar stærsta svínabúi landsins á Minni-Vatnsleysu. Hann tók að sér að reka Leikhúskjallarann 1952, og varð brátt frumkvöðull í veitinga- og gistihúsarekstri, þegar hann stofnaði Lídó og reisti Hótel Sögu, Hótel Holt og Hótel Loftleiðir á sjötta áratugnum.
En athafnamaðurinn var jafnframt einstæður fagurkeri, byrjaði ungur að safna listaverkum og eignaðist stærsta listaverkasafn í einkaeigu hér á landi, þar á meðal um tvö hundruð myndir eftir Kjarval. (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Bókin Þorvaldur Guðmundsson í Síld of fisk eru 4 kaflar, þeir eru:
- I kafli
- Ein og óstudd
- Þegar drambsemin er sem hæst
- Bölvan öll er blessun hulin
- Matarást á fjörunum
- Allir voru ánægðir
- Bernska og bæjarlíf
- Sendill á mótorhjóli
- Í skóla Jónasar frá Hriflu
- Sautján ára deildarstjóri
- Gamanvísnasöngvari
- Litla leikfélagið
- Nástefna nasismans
- Vinarhugans kraftur
- Keppandi í hnefaleikum
- Hamingjan á Hótel Borg
- II kafli
- Rjúpur og sjólax
- Í riki Foringjans
- Þegar Sveinn Björnsson reiddist
- Efasemdir og uggur
- Hæfnispróf hjá Fiskimálanefnd
- Fyrsta rækjuverksmiðjan
- Stysta ræða Hagalíns
- Þorskaflök fyrir Mussolini
- Rækjuverksmiðjan Bíldudals-Gísla
- Veigamesta verkefnið
- 45 þúsund fiskbollur
- Fyrsta humarverksmiðjan
- Naðra undirdjúpanna
- Hneykslanlegur samningur
- III. kafli
- Nýmóðins fiskbúð
- Nýtt hlutverk
- Í musteri íslenskrar tungu
- Þegar Lídó opnaði
- Bóndi á Minni-Vatnsleysu
- Hrátt og soðið
- Eigið hótel í Vatnsmýrinni
- Bændur byggja hótel
- Gistihús og listasafn
- Tonnið og Veisla aldarinnar
- Lífshlaup Kjarvals
- Skattakóngur
- IV kafli
- Einn af bestu sonum Íslands
- Viðauki
- Heimildaskrá
- Nafnaskrá
Ástand: gott, lausa kápan þreytt
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.