Þorrablót á Íslandi
Þessi bók er fjölbreytt að gerð. Í hana sækja menn bæði fróðleik og skemmtun. Ýmislegt bendir til þess að þorradýrkun hafi verið við lýði á Íslandi alla tíð sem eins kona launblót þar sem kristni og heiðni runnu smám saman í eitt.
Vitnisburður um þorradýrkun á fyrri öldum birtis m.a. í áður óbirtum kvæðum frá 17. og 18. öld.
Á síðiari hluta 19. aldar eru þorravísur endurvaktar af Matthíasi Jochumssyni, Birni M. Ólsen og Sigurði Vigfússyni o.fl. Á þessari öld taka þorrablót að breiðast út og fá á sig þá mynd sem við þekkjum nú.
Þetta er sannkölluð veislu- og skemmtanabók. Þangað má sækja töngtexta og veislugaman til að nota á góðri stund. Í bókinni eru á þriðja tug söngtexta með lögum. Þar eru á 8. tug ljósmynda auk teikninga eftir Sigurð Val Sigurðsson þar sem hann dregur fram hugmyndir fræðimanna um forna sið og þjóðhætti. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Þorrablót á Íslandi eru 6 kaflar auk undirkafla, þeir eru:
- Formáli
- Þorrablót
- Þorrablót í heiðni
- Þorri á síðari öldum
- Endurvakning þorrablóta (7 kaflar)
- Þorrablótavísur
- Þorrabragir
- Formálar og minni
- Viðauki
- Tilvísanir
- Persónunöfn
- Staðanöfn
- Valin atriðisorð
- Myndaskrá
- ZusammenfaBung
Ástand: gott








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.