Þingvallavatn undraheimur í mótun
Í þessari glæsilegu og vönduðu bók um vatnið og vellina er fjallað um svæðið frá ýmsum hliðum. Fremstu vísindamenn okkar, hver á sínu sviði náttúrufræðinnar, stunduðu viðamiklar rannsóknir þar um aldarfjóðrungs skeið og segja hér frá mótun svæðisins, jarðfræði, veðurfari, gróðri og dýralífi. Óhætt er að fullyrða að Þingvallavatn og umhverfi þess sé nú eitthvað best kannaða vistkerfi heims.
Ferli vatnsins frá upptökum í Langjökli og flæði þess undir hraunskildi, uns það sprettur fram um sprungur á botni Þingvallavatns, eru gerð ítarleg skil. Grein er frá órjúfanlegum tenglsum ólífrænnar náttúru við einstakt jurta- og dýralíf vantsins sem er enn að þróast, eins og bleikjuafbrigðin þar bera vott um.
Þingvellir hafa verið vettfangur margra merkustu atburða Íslandssögunnar í 1100 ár. Þeir eru einnig meðal merkustu staða landsins frá sjónarhóli náttúrufræðinnar, enda er þar að finna eitt af furðulegustu og sérkennilegustu vantasvæðum heims. Ummerki um flekaskil mill heimsálfanna tveggja, Evrópu og Ameríku, eru hverki augljósari og þar mætast austur og vestur í gróðri og dýralífi.
Sérstakir kaflar eru um Sogið og vistkerfið í heild og loks er fjallað um verndun Þingvalla og Þingvallavatns.
Bókina prýða mikill fjöldi ljósmynda, skýringamynda og korta. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Þingvallavatn undraheimur í mótun er skipt niður í 8 kafla og viðauki, þeir eru:
- Formáli
- Inngangur
- Umgjörðin (5 kaflar)
- Vatnsferillinn (3 kaflar)
- Lífið í vatninu (8 kaflar)
- Sogið (2 kaflar)
- Vistkerfið í heild
- Verndun Þingvalla og Þingvallavatns (7 kaflar)
- Eftirmáli
Ástand: gott, bæði innsíður og kápa







Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.