Þér að segja, veraldarsaga Péturs Hoffmanns Salómonssonar
Enn sækir Stefán Jónsson fréttamaður efnivið sinn beint í íslenzkt þjóðlíf, og leiðir nú sjálfan Pétur Hoffmann Salómonsson fram á sjónarsviðið. Pétur hefur orðið frá fyrsta kapítula til hins síðasta, en Stefán skráir samvizkusamlega eftir honum – og lætur sér hvergi bregða.
Það þarf ekki að kynna Pétur Hoffmann Salómonsson. Hann er löngu orðinn þjóðkunnur. Hér er þá komin ævisaga hans fram á þennan dag. Stefán Jónsson fréttamaður og sagnaritarinn, en Pétur sjálfur stýrir skútunni. Er skemmst frá að segja, að það er mikil sigling. Pétur er lífsreyndur maður, djarfur í skoðunum og ómyrkur í máli. Hér segir hann sögu sína alla og dregur hvergi undan. Þetta er saga af svaðilförum á sjó og landi, saga framkvæmdamannsins, sem margt hefur brallað, saga verkamannsins á kreppuárunum og saga kappans í Selvör. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott
Bókin er árituð af höfundi:
8 ágúst 1966
Pétur H. Salomonsson
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.