Þá flugu Ernir

Lítil flugsaga að vestan

Hörður Guðmundsson birtist með litla flugvél á Ísafirði og hugðist staldra við í þrjá mánuði. Dvöl teygðist á langinn og þegar Hörður og konan hans héldu á brott höfðu þau stofnað og rekið Flugfélagið Erni á Ísafirði í rúman aldarfjórðung. Á þeim tíma varð Hörður landsþekktur flugmaður, ekki síst fyrir frækilega framgöngu sína í sjúkraflugi sem hann stundaði við erfiðustu aðstæður um árabil og bjargaði þannig áfáum mannslífum. Í þessari bók segir frá sjúkrafluginu og ýmsu öðru á viðburðaríkum ferli Harðar; flugi með skólafólk, ráðherra, frambjóðendur og ýmsa aðra fyrir vestan, skrautlegri flugferð sem lauk með því að skrúfa vélarinnar fauk af, neyðarflugi fyrir alþjóða Rauða krossinn í Afríku, baráttunni fyrir tilvist Ernis, alvarlegum flugslysum í sögu félagsins og mörgu fleiru. Þetta er saga óvenjulegrar hvunndagshetju sem Vestfirðingar og margir fleiri eiga eftir að minnast lengi. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Bókin Þá flugu Ernir, lítil flugsaga að vestan eru 34 kaflar, en hefur ekkert efnisyfirlit.

Ástand: gott, bæði innsíður og kápa

Þá flugu Ernir, Hörður Guðmundsson -Jónas Jónasson

kr.1.200

Ekki til á lager

Vörunúmer: 8502010 Flokkur: Merkimiðar: , , , ,

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,520 kg
Ummál 16 × 3 × 24 cm
Blaðsíður:

200 +myndir

ISBN

9789979573848

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Skjaldborg

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1997

Hönnun:

Skjaldborg (umbrot og frágangur)

Höfundur:

Jónas Jónsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Þá flugu Ernir, lítil flugsaga að vestan – Uppseld”