Svartir englar
Kona hverfur sporlaust og óvenju umfangsmikilli lögreglurannsókn er strax hrundið af stað. Um er að ræða einstæða tveggja barna móður – og einn færasta kerfisfræðing landsins. Á ýmsu hefur gengið í einkalífi hennar en talsverð leynd virðist hvíla yfir starfi hennar síðustu mánuðina áður en hún hvarf. Fyrr en varir teygir rannsóknin anga sína á bak við tjöldin í stjórnsýslunni, inn í leðurklædd skúmaskot viðskiptalífsins og napran veruleika hinna verst settu í samfélaginu. (Heimild: Bókatíðindi)
Tilnefnd til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna 2005
Ástand: gott, laus við allt krot eða nafnamerkingu
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.