Stúlka með fingur
Stúlka með fingur er þroskasaga Unnar Jónsdóttur, ungrar alþýðustúlku úr höfuðstað Íslands. Barnung er hún send í sveit til sýslumanns þar sem hún kynnist sérkennilegu fólki og framandi lífsháttum. Og allt er annað en það sýnist. Hér er sagt frá glímu Unnar við nýjar aðstæður og af kynnum hennar af forboðnum ástum sem hafa afdrifaríkar afleiðingar.
Stúlka með fingur er söguleg skáldsaga. Um leið og sagnfræðingurinn Þórunn Valdimarsdóttir bregður upp snjallri og skemmtilegri aldarfarslýsingu, líkt og lesendur hennar þekkja úr Snorra í Húsafelli, þá hefur rithöfundurinn Þórunn skrifað einstaklega spennandi og dramatíska sögu sem heldur lesanda föngum allt til loka. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.