Stelpan frá Stokkseyri, saga Margrétar Frímannsdóttur

Hér gerir Margrét Frímannsdóttir, þingmaður Suðurlands, upp ævi sína. Hún dregur upp ljóslifandi myndir af litríkum bernskuárum á Stokkseyri og segir frá óbilandi stjórnmálaáhuga sínum, sem varð til þess að hún, sem einhverjir vildu meina að væri bara ómenntuð frystihússtelpa, gegndi stöðu oddvita í sínu sveitarfélagi um árabil og tók síðan sæti á Alþingi Íslendinga. Hún varð síðar fyrsta konan á Íslandi til þess að leiða einn af gömlu fjórflokkunum, Alþýðubandalagið, og hún lék lykilhlutverk í stofnun Samfylkingarinnar. En lífið gengur sjaldnast alveg smurt fyrir sig. Margrét var um tvítugt þegar hún komst að sannleikanum um faðerni sitt, hún gekk síðar í gegnum erfiðan skilnað og hún fékk að kenna á kvenfyrirlitningunni í strákaheimi stjórnmálanna. Fyrir fáeinum árum greindist hún svo með krabbamein, en var staðráðin í því frá upphafi að sigrast á veikindunum. Dramatísk fjölskyldusaga og átakasaga stjórnmálamanns tvinnast saman í þessari lipurlega skrifuðu bók sem er ómissandi innlegg í sögu íslenskra samtímastjórnmála, en jafnframt einstök heimild um einstaka baráttukonu. (Heimild: Bókatíðindi)
Bókin Stelpan frá Stokkseyri, saga Margrétar Frímannsdóttur, eru 10 kaflar og viðauki, þeir eru:
  • Upphaf
  • Æskuár
  • Pólitíkin og lífð
  • Sviptinar í einkalífi
  • Með strákunum á Alþingi
  • Formannsslagur
  • Fólkið vill Samfylkingu
  • Veikindi
  • Hjartans mál
  • Hvað framtíð ber í skauti sér
  • Viðauki
    • Ítarefni
      • Ræða flutt
      • Bókun Hjörleifs
      • Leikþáttu
    • Nafnalisti

Ástand: gott, bæði innsíður og kápa

Stelpan frá Stokkseyri saga Margrétar Frímannsdóttur - Þórunn Hrefna Sigujónsdóttir skráði

kr.900

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,900 kg
Ummál 16 × 4 × 24 cm
Blaðsíður:

367 +myndasíður +nafnalisti: bls. 361-367

ISBN

9979797045

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Bókaútgáfan Hólar

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2006

Hönnun:

Gunnar Kr. Sigurjónsson (umbrot)

Ljósmyndir:

Ólafur Þórðarson (ljósmynd á kápu)

Höfundur:

Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir (skráði)

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Stelpan frá Stokkseyri, saga Margrétar Frímannsdóttur”