Steinsmiðurinn
Hver myrðir sjö ára gamalt barn – og hvers vegna?
Humarveiðimaður dregur lítið stúlkubarn upp úr sjónum og í fyrstu er álitið að hún hafi drukknað fyrir slysni, En í ljós kemur að hún var myrt. Hver hefur viljað Söru, sjö ára gamalli, svo illt? Og hvers vegna?
Patrik Hedstöm, sem á nýfætt barn með Ericu, dregst ásamt félögum sínum á lögreglustöðinni í Tanumshede inn í flókna morðgátu.
Þegar líður á rannsókn málsins kemur í ljós að bak við friðsæla ímynd Fjällbacka leynist allt annaar veruleiki – nágrannakrytur, fjölskyldudeilur og barnaklám. Atburðir frá þriðja áratug 20. aldar fléttast samtímanum. Skyldi lausn gátunnar liggja í fortíðinni . (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott laus við allt krot og nafnamerkingu
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.